|
27.09.2006 21:48:38 / Daníel
Kíkti á náms/ráðsstefnu hjá Microsoft á Íslandi í dag. Byrjaði í
kringlubíói hálf níu í morgun og var langt fram á kvöld, nema hvað
að ég fór kringum þrjú leytið, alveg búinn á því.
Þeir voru að sýna Windows Vista, nýja stýrikerfið, og einhverja
fítusa í því ásamt öðrum nýjum forritum. Ekkert nýtt á nálinni í
Vista sem ekki hefur verið í Linux eða Apple. En samt ekki slæmt að
fá einhverja af þessum fítusum í Windows.
Maður er lærandi eins og brjálæðingur fyrir þessi
miðvetrarprófin sem eru í næstu viku. Sem betur fer eru þau bara
til upphækkunar og þá fær maður að sjá hvernig maður er að standa
sig í þessu.
»
26.09.2006 19:34:02 / Daníel
Jæja, ætla að henda inn nokkrum punktum hvað ég er búinn að vera
að gera af mér.
- Byrjaður í HR í tölvunarfræði
- Er að fíla mig vel í þessu námi
- Er búinn að kíkja í vísindaferðir og skilur maður núna af
hverju fólk stundar þetta grimmt 
- Er búinn að raka skeggið og stefni á að halda mér þannig
allaveganna í óákveðinn tíma.
- Skrifa þetta blogg og komast að því að það er voðalega lítið
sem að ég er búinn að vera að gera.
ble í bili
»
06.08.2006 18:38:16 / Daníel
Nú er maður orðinn tuttugu og tveggja ára gamall. Áður en maður
veit af þá fer maður í Hagkaup að kaupa göngugrindur á útsölu.
Ég hélt partý í gær til fögnuðar afmælisins og tókst það bara
helvíti vel upp. Fín stemming og fólk skvompað á því. Meira að
segja einhverjir sem kölluðu á Eyjólf. Vil þakka öllum þeim sem
mættu til mín (nema fávitanum sem stal dvd disk sem var í tölvunni
minni, hvað er málið með að mæta í partý og stela ? ef þú lest
þetta þá vinsamlegast skilaðu disknum nema að þú sért drusla og
gunga).
»
31.07.2006 00:48:40 / Daníel
Var á tónleikum hjá Sigurós rétt í þessu. Þeir voru haldnir í
Klambratúni og voru algjör snilld. Samkvæmt mbl.is þá var áætlað að
fimmtán til tuttugu þúsund manns hafi mætt. Ekki slæmt það.
»
30.07.2006 19:06:10 / Daníel
Afsakið bloggleysið, er að vinna í þessu.
Kíkti í reunion bekkjarpartý hjá 6-Dauða í gær hjá Pálmari.
Gaman að hitta liðið og heyra hvað er í gangi hjá fólki.
Allaveganna hjá þeim sem mættu. Sumir voru uppteknir eða ekki einu
sinni á landinu. Eftir mikið spjall og hressleika var ákveðið að
kíkja niður í bæ á einhvern skemmtistað og varð Barinn fyrir
valinu. Ágætis stemming sem myndaðist þar en eftir þann stað
sundraðist hópurinn og fólk fór sínar leiðir. Ég skemmti mér
konunglega og vill bara þakka fyrir mig.
Líka má ekki gleyma að hrósa Óla Palla um að sjá um þetta og
Pálmari fyrir að sjá um stað til að hittast.
»
20.06.2006 17:32:46 / Daníel
Úff, næstum mánuður síðan að maður bloggaði síðast. Helvítis
gleymingur alltaf í gangi.
Það hjálpaði kannski líka að það er ekkert sérstaklega mikið búið
að vera að gerast. Síðasta föstudag þá kíkti ég í partý hjá frænda
mínum, Bjarka, sem var að halda innflutningspartý. Mikið af ölvuðu
fólki sem maður þekkti lítið sem og ekki neitt.
En þá er að huga að framtíðinni.
Roskildefestival !!!
Ég flýg til Köben (0 RLY?!?) á fimmtudaginn, gisti í tvær nætur á
gistihúsi og síðan er það 'skeldan sem tekur við í viku. Kannski að
maður taki með sér eitt stykki myndavél og verður góður við ykkur
sem komast ekki eða hreinlega vilja ekki fara.
»
27.05.2006 12:22:02 / Daníel
Við strákarnir kíktum í fótbolta á fimmtudaginn. Djöfull var það
gaman. Við spiluðum í tvo tíma, sem er heill hellingur miðað við
þolið í sumum (sérstaklega mér) er dottið langt fyrir neðan allar
hellur. Daginn eftir og dagurinn í dag er maður að gjalda fyrir
skemmtilegheitin því harðsperrurnar eru næstum allstaðar. Þetta
þarf maður að gera oftar í sumar.
Í gær, föstudaginn, fór ég niður í bæ á stað sem heitir Barinn. Þar
var hún Eva að fagna útskrift sinni úr Kvennó. Eitt það fyndnasta
sem ég hef heyrt (hefði séð ef Andri A. væri ekki svona gleyminn)
þá var það sem Steinar sagði. Hann stóð fyrir framan
Samfylkingar"búðina" , eða hvað svo sem þetta er, á Laugarveginum
og var að tala við Samfylkingar mann. Einhversstaðar í þessum
umræðum þá sagði Steinar:"Steinunn Valdís er sko ekki vinur minn!".
Þá heyrðist "nú ?". Frá hverjum öðrum en Steinunni Valdísi !.
Djöfull hefði ég viljað sjá þetta. Steinar hrökk víst í kút. En
jæja, aftur að Barnum. Menn voru misfullir og mishressir eins og
gengur og gerist. Ég fór heim að vísu snemma vegna þreytu. Eva, til
hamingju með útskriftina enn og aftur.
»
24.05.2006 10:29:06 / Daníel
Það er nú orðið helvíti langt síðan að maður bloggaði seinast og
fjölmargt búið að gerast á þeim tíma. Hulda (systir mín) og Hjalti
(mágur) komu til landsins frá útlandinu. Vinnan sem maður er í er í
fullum gangi og eins og við var að búast, helvítis öxlin á mér er
til helvítis trafala.
Ég er búinn að sækja um í HÍ og HR í hugbúnaðarverkfræði en þá er
bara að bíða og sjá hvort að þeir taki við manni í þetta nám.
Veit voða lítið hvað ég á að skrifa hérna núna þar sem það hefur
helvíti margt gerst undanfarið en ég er að pæla í að sleppa bara að
skrifa um það og skrifa næstu færslur um hvað mun gerast á næstu
dögum.
»
25.04.2006 00:41:33 / Daníel
Síðastliðin miðvikudag þá kíktum við nokkrir á Gauk á Stöng þar sem
nokkrar hljómsveitir voru að troða upp. Ein af þeim, sem við komum
til að sjá, kallast Telepathetics og manna hana Eyþór, Óttar,
Andrés og leynimaðurinn (veit ekki hvað hann heitir). Þeir stóðu
sig þvílíkt vel verð ég að segja og ég sá eitthvað sem ég hélt að
myndi seint gerast, en jú, bassaleikarinn, Óttar, tókst að slíta
streng. Ótrúlegt en satt.
Geir Ingi tók líka einn mesta grínbíómyndatakt sem ég hef á ævi
minni séð. Svo að maður útskýri þá sitjum við fimm við eitt borð,
ég sit við vinstri hönd Geirs, Andri A. á endanum og bróðir Geirs,
Jóki situr á móti honum og Davíð við hans hlið. Það vill svo
yndislega vel til að Geir er að rugga sér á stólnum, dettur aftur
fyrir sig, ýtir á "Push here to open" takkann á neyðarútganginum
sem var beint fyrir aftan hann og endar bæði Geir og stóllinn hans
út á gangstétt. Ég stóð upp, hjálpaði honum, settist niður og var
helvíti nálægt því að kafna úr hlátri ásamt öðrum borðfélögum. Sama
hversu svalur maður er, þá er ekki hægt að spila sig svalan úr
þessu, Bruce Willis myndi ekki einu sinni ná því.
Svo að maður fari nú enn lengra aftur í tímann þá voru þrír
endajaxlar teknir úr mér. Yndisleg tilfinning að finna fyrir því
þegar að tannlæknirinn brýtur endajaxlinn í tvo eða þrjá búta.
Bjóst við að verða stokkbólginn og varð það að veruleika í tvo eða
þrjá daga. Hægri kinnin á mér minnti óneitanlega mikið á Arnold
Schwarzenegger. En hún var fljót að hjaðna. Sem er helvíti
gott.
Síðan svo að maður færi sig nær málefni líðandi stundar þá er ég að
skrifa þessa blogfærslu með aðeins einni hendi. Af hverju ? Jú, mér
tókst nefnilega á alveg snildarlegan hátt að fara úr og aftur í
axlarlið þegar ég var að teygja úr mér. Já, það er rétt, ég sat við
matarborðið, geispaði, teygði út hendurnar og *CLICK*. Þetta leiddi
til dofnun í allri vinstri hendinni nema í öxlinni þar sem þvílíkur
verkur myndaðist. Eftir nokkrar mínútur jafnaðist þetta að vísu og
þá skellti maður sér upp á Slysó í alveg yndislega bið í rúma tvo
tíma. Síðan kemur læknir og segir þetta vanalega ,, Er þetta vont
?'' og endurgerir þennan skelfilega sársauka. En það er að vísu
nauðsyn svo að þeir viti hvað er í gangi. Eftir nokkrar
röntgenmyndir og læti þá var ég settur í fatla og sagt að vöðvinn
og sinar og allt draslið í kringum liðinn hafi tognað og að þetta
eigi að lagast á einni til tveim vikum. Á meðan þarf maður að hanga
í alveg yndislegum fatla og vera hress.
»
06.04.2006 09:18:51 / Daníel
Síðastliðinn fimmtudag þá fór ég á Pravda en þar var haldinn fyrsta
trúbardorakeppni háskólanema. Ari og Gunnar tóku þátt og hreinlegu
tóku sína keppinauta í nösina. Það var gífurleg stemming og verð ég
að segja að þetta hafi verið með besta trúbardors kvöldi sem ég hef
farið á. Þeir komust í undanúrslit og þá bíður maður spenntur eftir
þegar að því kemur. Það er spurning að kíkja á keppnina á morgun og
sjá hvernig keppninautarnir verða.
Davíð, oft þekktur sem Hinn Illi Tvíburi, er kominn til landsins
eftir að herja víking í Svíðþjóð. En þetta er aðeins viðkoma hér á
landi því enn eru mörg landsvæði eftir að leggja undir sig.
Netið er búið að vera að stríða mér, bæði Símanns og mín megin.
Netið var alltaf að detta út á ca. 10 til 15 mín. fresti og þó
nokkrar mínútur í senn. Hringt var upp í Símann eins og vanalegt er
í svona aðstæðum og fékk ég það svar að ég ætti að prufa að taka
smásíurnar úr sambandi. Það var gert og ekki varð það til árangurs
því ennþá slitnaði sambandið. Eftir að hafa fiktar í routernum þá
komst ég að því að þessi router væri eitthvað að missa sig en hann
virtist alltaf fara í loop-u og endurnýja allar ip-tölur á netinu
hjá mér. Eftir margra tíma puð og vitleysu þá kemur hingað
símastarfsmaður sem reynir eitthvað að laga þetta en gefst upp og
lætur mig fá nýjan router. Allt virtist virka fínt en það er
vitleysa hvað maður þarf að gera til að fá hann til að opna Port*.
En ég þarf að opna þau til að geta gert hina ýmsu hluti sem ég geri
í tölvum. Núna er tengingin búin að vera í lagi í nokkra daga og
vona ég að það haldist þannig.
*Port: Má líkja þessu við hurðir sem þú opnar út í netið sem forrit
geta notað til að hraða sínum keyrslum á netinu og lenda ekki
alltaf í útistöðum við eldveggi. Já, þetta getur stofnað öryggi
tölvunnar með því að hafa hurðir opnar út á netið en ef maður
er að keyra nógu góðan eldvegg á tölvunum sínum þá ætti þetta að
vera í lagi.
»
24.03.2006 16:11:22 / Daníel
Ég var að pæla, hvenær veit blint fólk hvenær það á að hætta að
skeina sér ?
Endilega segja okkur hinum það sem vita það ekki í commentunum
hérna að neðan.
Takk fyrir.
»
16.03.2006 19:02:59 / Daníel
Fékk bækurnar sem ég pantaði um daginn loksins í hús. Þær voru
pantaðar af Amazon og verð ég nú bara að segja að maður var frekar
sáttur með fljótleika þeirra. Auðvitað kostaði það sitt að henda
þessu í flýtimeðferð en þar sem það voru líka bækur fyrir pabba
gamla í sömu sendingu þá splæsti hann í hraðmeðferð á þetta. Er
búinn að vera að missa mig í þessari bók sem ég fékk en hún er svo
mikið sem Linux Bíblían 2006 útgáfan (e. Linux Bible). Hún er búin
að vera valdur af svefnleysi mínu undanfarið. Ótrúlegt hvað ég get
skemmt mér í Linux. Bara eins og lítill krakki í pollagalla, góð
stígvéli og fullt af pollum til að hoppa í.
En á öðrum nótum. Fyrir þá sem tóku ekki eftir því þá er ég búinn
að henda upp hlekkjum á þau blogg sem ég kíki oft á. Ef þér finnst
þitt vanta þá máttu endilega henda því inn í "comment"-ið og ég
kíki á það.
Ég er líka kominn í þann pakka að vera kominn með gríðarlegan lubba
og ég sé fram á það að vera svoleiðis í ágætan tíma í viðbót. Hví,
spyrðu örugglega. Svarið er, hef ekki hugmynd. Dýrt að fara í
klippingu kannski. Kannski að maður endar bara á að fíla það að
vera með lubba. Ef þú hefur eitthvað að segja um þetta, endilega
skrifaðu hér fyrir neðan.
Yfir og út.
»
04.03.2006 23:06:39 / Daníel
Bara mest lítið búið að vera í gangi hjá mér. Eins og glöggir hafa
tekið eftir þá er lærdómur í háu sæti hjá mér og eins og flestir
sem eru lærandi þá gerist alltof lítið. Kíkti að vísu á Litla Ljóta
Andarungan með Nonna, Skúla og Andra A í gær. Allir í bjór nema ég,
bara svart kaffi hjá mér. Síðan var kíkt til Andra Þórs sem var að
vinna á Nasa við það mikilvæga verkefni að passa baksviðið. Þetta
var þvílíkt pillupartý og leiðinleg tónlist sem hljómaði eins
og rispaður geisladiskur. Djöfull væri maður búinn að fara framm á
launahækkun (eða allaveganna bónusgreiðslum) vegna vinnukvölda sem
þessum.
Gunnar og Ari eru að spila á Hressó þegar þessi færsla er skrifuð
en vegna þreyttleika á minni hlið þá verð ég að sleppa því að fara.
Biðst ég nú afsökunar vegna þess.
»
19.02.2006 13:02:06 / Daníel
Á föstudaginn var farið niður í bæ þar sem förin byrjaði á
hótelbarnum Salt. Þessi bar er frekar mikill "wannabe" snobbbar
verð ég nú að segja. Þegar ég kom þangað sá maður að Steinar var
orðinn frekar ölvaður en hann var í vísindaferð. Eins og oft nýlega
þegar Steinar verður fullur þá byrjar hávaði og læti. Bjórar að
sullast og þaðan af. Hann kom sér út með hjálp Guðmundars en annars
hefði honum verið hent út. Þaðan af var farið á Hressingarskálann
og á þessum tveim tímum sem ég var þar heyrði ég lagið Til Hamingju
Ísland með Sílvíu Nótt a.m.k. fimm sinnum.
Í gær, laugardaginn, þá var farið í partý til Gunnars lögfræðings.
Það var búið að stilla upp fyrir hljómsveit, þ.e.a.s. gítarar,
hljómborð og stafrænt trommusett. Eftir um tuttugu mínútna spilun
þá kom lögreglan og bað Gunnar um að lækka hávaðan. Það var á
tímabili mikið af fólki og þröngt á þingi. Skemmtilegt partý og
eintómur hressleiki.
Jæja, þá þarf maður að fara að koma sér. Lærdómurinn bíður
ekki.
Lernen lernen immer lernen.
»
06.02.2006 20:17:52 / Daníel
Maður er nú aldeilis búinn að vera að læra á fullu. Raungreinar,
raungreinar, raungreinar og þaðan af. Hef ekki getað sinnt blogginu
eins vel og ég vildi en það verður bara að hafa. Ég reyni að
uppfæra oftar hérna þótt að það gerist ekki mikið meðan maður er
alltaf lærandi.
»
Síður: 1 2 3 4
|